Athugið: Tollar og innflutningsgjöld eru ekki innifalin og geta áfallist við afhendingu erlendis.
Please note: Just a quick note that customs duties and import taxes are not included and may apply upon delivery.
2.690kr.
Þráir þú betri svefn?
Stundum getur verið erfitt að sofna á kvöldin eða ná djúpum svefni.
Þá gæti Melatónín verið lausnin.
Melatónín er náttúrulegt hormón sem líkaminn myndar sjálfur og stýrist framleiðslan af birtustigi. Í dagsbirtu er minna melantónín í líkamanum en framleiðslan eykst þegar myrkrið eykst og kallar fram syfju.
Ýmsar aðstæður geta valda því að þessi hormónabúskapur fer úr skorðum, t.d. aukin dagsbirta, vaktavinna, flugferðalög o.fl. Þá getur verið gott að grípa til bætiefna eins og melatóníns.
Bætiefnið inniheldur 1 mg af melatóníni og inntakan getur dregið úr tímanum sem líkaminn þarf til að sofna.
Mild og náttúruleg leið til að koma líkamanum í svefnrútínu.
Hvert glas inniheldur: 60 töflur
Innihald í dagsskammti: 1 tafla
Melatonin 1 mg
_
Önnur innihaldsefni: Isomalt, örkristallað sellulósaduft, magnesíumsterat, kísill.
Geymist á þurrum stað, varið gegn hita og ljósi. Geymist þar sem börn hvorki ná né sjá til.