Athugið: Tollar og innflutningsgjöld eru ekki innifalin og geta áfallist við afhendingu erlendis.

Please note: Just a quick note that customs duties and import taxes are not included and may apply upon delivery.

Frí heimsending þegar pantað er yfir 8.000 .- kr Frí heimsending þegar pantað er yfir 8.000 .- kr Frí heimsending þegar pantað er yfir 8.000 .- kr Frí heimsending þegar pantað er yfir 8.000 .- kr
We ship internationally! We ship internationally! We ship internationally! We ship internationally! We ship internationally! We ship internationally!

Afhending

Allar PROTIS pantanir eru afgreiddar frá Kavita ehf. næsta virka dag eftir pöntun.  Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður Kavita ehf. hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Hægt er að sækja vefpantanir á skrifstofu PROTIS, Akralind 2 eða fá sent með Íslandspósti.

Um pantanir sem er dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Kavita ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Kavita ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum 8.000 kr og yfir nema annað komi fram.

SENDINGAMÖGULEIKAR ERU EFTIRFARANDI:

 

PÓSTURINN – PAKKI PÓSTHÚS 

Pöntun send á næsta pósthús. Verð: 1.190 kr.

  • Pakki Pósthús er afhentur á pósthúsi viðtakanda við framvísun tilkynningar og skilríkjameð mynd.
  • Tilkynning um pakka er send á GSM númer sem skráð er á pakkann. Ef ekkert GSM númer er skráð er prentuð út tilkynning og hún borin út á það heimilisfang sem skráð er fyrir pakkanum.
  • Viðtakandi getur einnig veitt öðrum aðila skriflegt
    umboð til að taka á móti pakkanum á pósthúsi fyrir sína hönd.
  • Geymslutími pakka á pósthúsi er 30 dagar frá komudegi. Geymslugjald leggst á sendingar eftir 10 virka daga á pósthúsi.

 

PÓSTURINN – PAKKI HEIM

Pantanir eru almennt keyrðar heim 1- 3 dögum eftir póstlagningu. Verð: 1.490 kr.

  • Pakkar Heim eru keyrðir út til viðtakenda þar sem Pósturinn hefur heimaksturskerfi. Ef póstlagt er fyrir síðasta póstlagningartíma verður pakkinn keyrður út 1., 2. eða 3. dag eftir póstlagningu.
  • Gæðastaðlar Póstsins miðast við að tilraun til afhendingar sé reynd í a.m.k. 85% tilfella fyrsta dag eftir póstlagningu þar sem það er mögulegt.

 

PÓSTURINN – PAKKI PÓSTBOX

Póstbox eru opin 24/7 og eru staðsett víðsvegar um landið. Verð: 990 kr.

 Sjá staðsetningar hér.

  • Pakki Póstbox telst afhentur viðtakanda þegar QR kóði hefur verið skannaður eða pin númer slegið inn og hólf opnast.
  • Gæðastaðlar Póstsins miðast við afhendingu daginn eftir í Póstbox í 90% tilfella.
  • Póstbox eru fyllt tvisvar á dag virka daga og einu sinni á laugardögum
  • Viðskiptavinir geta eingöngu móttekið eftirfarandi pakkasendingar í Póstbox:
    • Innlendar pakkasendingar undir stærðarmörkum
    • Hámarksþyngd fyrir Pakki Póstbox er 20 kg
    • Innlendar pakkasendingar með engum gjöldum sem viðtakandi þarf að greiða
    • Innlendar pakkasendingar án viðbótarþjónustu að undanskildu brothætt.
  • Til að nota póstbox þarf að skrá sig á minnpostur.is og velja þar póstbox sem afhendingarval. Hægt er að breyta um valið póstbox hvenær sem er.
  • Eftir að póstbox hefur verið valið munu allar sendingar framvegis berast í það póstbox, óháð utanáskrift sendinganna. Tilkynningar berast í GSM símanúmer viðtakanda.