UM PROTIS

PROTIS er íslenskt vörumerki sem sérhæfir sig í að þróa og markaðssetja hágæða heilsuvörur með áherslu á sjálfbær íslensk hráefni. 

Sagan

Uppruni PROTIS vörumerkisins er rannsóknar-og þróunarvinna á nýtingu fiskiprótína, sem hófst hjá fyrirtækinu Iceprotein ehf., í samstarfi við Háskóla Íslands, Matís og FISK Seafood. 

Rannsókna- og þróunarstarfið fór fram í vísindagarði á Sauðarkróki, þar sem sérhæfðar rannsóknarstofur og tilraunaverksmiðja reyndust kjörið umhverfi til að þróa vörur og verkferla.

Í byrjun árs 2016 komu fyrstu vörurnar á markað undir vörumerkinu PROTIS.

Árið 2021 festi fyrirtækið Kavita kaup á PROTIS með þá framtíðarsýn að halda áfram uppbyggingu á vörumerkinu út frá því gæðastarfi sem vörumerkið og vörurnar eru sprottnar úr.

Í dag eru tvær af upphaflegu vörum PROTIS, Kollagen og PROTIS Liðir fáanlegar á markaði.   

Samstarfsaðilar Kavita ehf. í framleiðslu á PROTIS vörunum eru meðal annars; Foodsmart Nordic ehf. sem framleiðir hágæða kollagen og sæbjúgnaduft og Nordpro ehf. sem annast hylkjun og pökkun á vörulínunni. 

Þá er Kavita ehf. í samstarfi við erlenda framleiðendur. 

Markmið

Markmið Kavita ehf. er að bjóða upp á fjölbreytt úrval hágæða fæðubótarefna.

Vörur PROTIS eru  fáanlegar í öllum helstu matvöruverslunum og apótekum um land allt, einnig er hægt að kaupa vörur á http://www.protis.is.

Staðsetning

PROTIS / Kavita ehf

Húnabraut 33,
540 Blönduós
Iceland