Afhending

AAllar PROTIS pantanir eru afgreiddar frá Kavita ehf. næsta virka dag eftir pöntun.  Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður Kavita ehf. hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Hægt er að sækja vefpantanir á skrifstofu PROTIS, Akralind 2 eða fá sent með Íslandspósti.

Um pantanir sem er dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Kavita ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Kavita ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum 8.000 kr og yfir nema annað komi fram.

SENDINGAMÖGULEIKAR ERU EFTIRFARANDI:

 

PÓSTURINN – PAKKI PÓSTHÚS 

Pöntun send á næsta pósthús. Verð: 1.190 kr.

  • Pakki Pósthús er afhentur á pósthúsi viðtakanda við framvísun tilkynningar og skilríkjameð mynd.
  • Tilkynning um pakka er send á GSM númer sem skráð er á pakkann. Ef ekkert GSM númer er skráð er prentuð út tilkynning og hún borin út á það heimilisfang sem skráð er fyrir pakkanum.
  • Viðtakandi getur einnig veitt öðrum aðila skriflegt
    umboð til að taka á móti pakkanum á pósthúsi fyrir sína hönd.
  • Geymslutími pakka á pósthúsi er 30 dagar frá komudegi. Geymslugjald leggst á sendingar eftir 10 virka daga á pósthúsi.

 

PÓSTURINN – PAKKI HEIM

Pantanir eru almennt keyrðar heim 1- 3 dögum eftir póstlagningu. Verð: 1.490 kr.

  • Pakkar Heim eru keyrðir út til viðtakenda þar sem Pósturinn hefur heimaksturskerfi. Ef póstlagt er fyrir síðasta póstlagningartíma verður pakkinn keyrður út 1., 2. eða 3. dag eftir póstlagningu.
  • Gæðastaðlar Póstsins miðast við að tilraun til afhendingar sé reynd í a.m.k. 85% tilfella fyrsta dag eftir póstlagningu þar sem það er mögulegt.

 

PÓSTURINN – PAKKI PÓSTBOX

Póstbox eru opin 24/7 og eru staðsett víðsvegar um landið. Verð: 990 kr.

 Sjá staðsetningar hér.

  • Pakki Póstbox telst afhentur viðtakanda þegar QR kóði hefur verið skannaður eða pin númer slegið inn og hólf opnast.
  • Gæðastaðlar Póstsins miðast við afhendingu daginn eftir í Póstbox í 90% tilfella.
  • Póstbox eru fyllt tvisvar á dag virka daga og einu sinni á laugardögum
  • Viðskiptavinir geta eingöngu móttekið eftirfarandi pakkasendingar í Póstbox:
    • Innlendar pakkasendingar undir stærðarmörkum
    • Hámarksþyngd fyrir Pakki Póstbox er 20 kg
    • Innlendar pakkasendingar með engum gjöldum sem viðtakandi þarf að greiða
    • Innlendar pakkasendingar án viðbótarþjónustu að undanskildu brothætt.
  • Til að nota póstbox þarf að skrá sig á minnpostur.is og velja þar póstbox sem afhendingarval. Hægt er að breyta um valið póstbox hvenær sem er.
  • Eftir að póstbox hefur verið valið munu allar sendingar framvegis berast í það póstbox, óháð utanáskrift sendinganna. Tilkynningar berast í GSM símanúmer viðtakanda.